>


Wednesday, May 03, 2006
getraun

nú ætla ég að byrja með ansiskemmtilega getraun sem ég kýs að kalla tríóið ósigrandi...Það sem þið eigið að gera er að segja mér hvaða menn þetta eru og í hvaða hljómsveitum þessir menn eru frægir fyrir að spila í????   setjið svörin í commentin                       

                                                                

 

                                                                                                             

 

 


Posted at 10:45 pm by Bikko
7 hafa grenjað  




Monday, April 24, 2006
Páskar... Snjósleði og Bjartmar

nú er ég komin á Morðfjörð aftur eftir páskafríið og er andskoti gott að vera komin aftur og geta lamið á húðirnar aðeins(þá er ég að tala um trommusettið ég lamdi engan einstakling)

Páskafríið hófst ekki eins og ég vildi að það myndi byrja....ég velti snjósleðanum og rústaði skíðunumn sem voru undan honum....Þetta hófst allt þannig að klukkan 8:00 að laugardagsmorgni þá hringir Púngs(Kjalli) í mig og segir mér að honn og Umli(Dóri) séu að fara á sleða og ætluðu að reyna að fara hringinn í kringum dyrfjöllin..varð ég mjög spenntur enda hef ég aldrei farið þann hring...svo hittumst við heima hjá kjalla og ákváðum leiðina sem við ætluðum að fara...Svo keyrði dóri af stað því að hann var með sleðan í kerru og þurfti að fara inn fjörðinn til að losa hann þar...en svo héldum við kjalli galvaskir af stað og keyrðum inn blá sem kallað er en þar gerðist óhappið mikla...á leið okkar yfir litla á þá ákvað ég nú að gefa sleðanum aldeilis inn og þegar hann var við það að verða komin í botn þú hrundi ísloftið niður svona 1 og hálfum meter fyrir framan mig og var ég á það mikilli ferð að ég áttaði mig ekki á því...svo man ég bara eftir því þegar að ég skalla vélarhlífina á sleðanum og rúlla og stoppa svona 3-4 metrum frá sleðanum sem fór í kollhnís framfyrir sig og endaði á hvolfi..svo bundum við kjalli skíðið saman sem brotnaði og ég keyrði heim..í dulitlum kvölum en þó aðalega í rifbeini og svo var ég dálítið ringlaður...

Svo gerist ekkert meira merkilegt fyrr en núna á föstudaginn fékk ég skíði undir sleðan og hálpaði pabbi mér við að koma þeim undir...en núna þarf maður alltaf að henda honum á kerru útaf því að það er komið plast á skíðin...

Svo eru það tónleikarnir hjá Bjartmari sém ég ætla að lýsa í örfáum orðum:Algjör helvítis djöfulsins andskotans fjandans snilld...

Takk fyrir...lög bloggsins voru Ég er ekki alki..og Sunnudagsmorgun með Bjartmari

 


Posted at 8:24 pm by Bikko
1 hafa grenjað  




Friday, April 21, 2006
prufa

 

Chicks Think I'm Hot!
 
You're A Weener!
 langaði að prófa þessa kalla sem ég var að ná í








Posted at 6:34 pm by Bikko
opnaðu þig  




Thursday, April 06, 2006
skammast hrikalega

á mínum venjulega bloggrúnti endaði ég eins og vanalega á síðu Ólafs frænda míns Björnssonar...Um leið og hún opnaðist þá varð mér nokkuð starsýnt á tölvuskjáinn og skammaðist mín allt í einu alveg hrikalega...

Þá fattaði ég að ég hefði gleymt afmæli Þrastar stórfrænda míns..og eins og óli segir þá er Þröstur alltaf vanur að hringja í mann og skammaðist ég minn alveg hrikalega...en já ég ætla að gera eins pistil og Óli

Samband okkar Þrastar nær alveg aftur til ársins 1988 er ég kom í heimin en við kynntumst ekki almennilega fyrr en 1989 er hann bauð mér í ferminguna sína..þar náðum við að tengjast miklu betur..en svo má bæta því við þökk sé mér þá missti þröstur ekki af fyrsta Spaugstofuþættinum.

Það eina sem við eigum sameiginlegt fyrir utan skyldleika okkar..er ótæmandi ást á Spaugstofunni.og höfum við verið að rækta þá ást í gegnum árin

Ætla ég að senda Þresti frænda mínum síðbúnar en miklar æfmæliskveðjur...

birkir kveður í mikilli skömm

 

 


Posted at 11:32 pm by Bikko
2 hafa grenjað  




Friday, March 31, 2006

Nú er ég búinn að fá tilboð í að gera myndband með myndum og myndbrotum frá Outloud ballinu sem verður á stöðskrúðsfirði í kveld....það er reyndar eitt vandamál...ég á ekki myndavél en ég veit að harpa systir kemst ekki að því að ég steli myndavélinni hennar þannig að ég er búinn að redda myndavél..

En ég vona að ég sjái sem flesta á ballinu og þá muniði kannski verða svo heppin að enda á myndbandinu.

Af mér er mest lítið að frétta.....er að fara í páskafrí eftir tvær vikur og mun það standa í tvær vikur...ég er að spá í að eyða þessum 2 vikum á snjósleðanum en maður veit aldrei hvað gerist..

æji (svona eins og Svenni Guðmunds myndi segja það) ég nenni ekki að skrifa meira...bless

 


Posted at 3:26 pm by Bikko
1 hafa grenjað  

Nú er ég búinn að fá tilboð í að gera myndband með myndum og myndbrotum frá Outloud ballinu sem verður á stöðskrúðsfirði í kveld....það er reyndar eitt vandamál...ég á ekki myndavél en ég veit að harpa systir kemst ekki að því að ég steli myndavélinni hennar þannig að ég er búinn að redda myndavél..

En ég vona að ég sjái sem flesta á ballinu og þá muniði kannski verða svo heppin að enda á myndbandinu.

Af mér er mest lítið að frétta.....er að fara í páskafrí eftir tvær vikur og mun það standa í tvær vikur...ég er að spá í að eyða þessum 2 vikum á snjósleðanum en maður veit aldrei hvað gerist..

æji (svona eins og Svenni Guðmunds myndi segja það) ég nenni ekki að skrifa meira...bless

 


Posted at 3:20 pm by Bikko
opnaðu þig  




Wednesday, March 22, 2006

....ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að tala um..hef ekkert að segja. ákvað samt að skrifa þetta þar sem að ég hef ekkert að gera. er búinn að vera að tromma síðan klukkan 5 í dag og var að verða ansi þreyttur svona undir restina. nú í gær var liverpool að spila við birmingham í FA bikarnum og fór leikurinn 7-0 fyrir liverpool...mörkin skoruðu Hyypia,Crouch(2),nando,sjálfsmark,cissé. og ég væri að ljúga ef ég segði að ég hafi ekki verið að drepast úr drýgindum í gær.

Var að spjalla við gamla bólfélagan minn úr ME áðan hann Natan..og vorum við að ræða fyrirhugaða ferða hans til danaveldis og þá barst það til tals að hann ætlar ap kaupa fyrir mig takkaskó og jafnvel nýja markmannshanska svo að maður verði tilbúinn fyrir tímabilið hjá UMFB...Já Natan hefur ákveðið að skipta úr neista yfir í UMFB. og er það bara algjör snilld...

er að vona að strákarnir af vistinni drullist í íþróttahúsið á morgunn.því að ég hef ekki komist í fótbolta síðan um jól...og skammast ég mín gríðarlega fyrir það og nú verður maður að fara að komast í form svo maður endi ekki sem vara markvörður hjá UMFB..bless


Posted at 10:22 pm by Bikko
1 hafa grenjað  




Tuesday, March 14, 2006
mynband númer 2

jæja ég er búinn að vera rosa aktívur í myndböndunum..og nú er komið að myndbandi númer 2...þemað í því er 70 ára afmæli Jónsa..Jónsakilde....ég var reyndar löngu búinn að gera þetta myndband...átti það bara alltaf í tölvunni.ég biðst reyndar forláts á því að endirinn skuli vera í rugli enn mig grunar að harpa systir hafi í öfund sinni eyðilaggt myndbandið..en gjörðiði svo vel

Posted at 12:36 pm by Bikko
2 hafa grenjað  




Monday, March 13, 2006
myndband

nú er ég búinn að setja inn fyrsta myndbandið...og var þemað bara Borgarfjörður Eystri...ég veit að það er óþægilegt að horfa á þetta svona en ég er að reyna að bæta úr þessu.

Myndbandið er neðarlega til hægri


Posted at 8:22 pm by Bikko
1 hafa grenjað  




Sunday, March 12, 2006
Kominn heim

Komiði sæl og blessuð..þetta er bikko sem ritar hér..

Er komin aftur á þetta blogg kerfi vegna þess að mér finnst hitt vera hommalegt..og svo eru allir með svoleiðis og ég er ekki maður sem fylgir straumnum.

En já var að koma úr firðinum fagra, var alltaf ætlunin að eyða helginni á snjósleðinni enda voru menn búnir að hringja í mig og segja mér hversu frábært væri að fara á snjósleða núna..svo þegar að ég keyri inn í borgarfjörðinn þá mætir mér þessi líka gríðarlega rigning og hún var búinn að taka allan snjóinn..

Á laugardags morgunn nánar tiltekið klukkan 08:10 vekur pabbi minn mig og segir mér að ég eigi að fara í vinnu..bæði dóri og kalli klikkuðu á að láta mig vita.þannig að ég varð að fara ógeðslega myglaður í vinnu og vinna  í ísköldu vatni sem hjálpaði nú ekki mikið til nema að ég vaknaði ansi fljótt við það.

Svo núna í morgunn þá fór ég nú í fjárhúsin hjá afa og ég rúði rollurnar með smá hjálp frá pabba jökli og afa, sem voru þarna aðeins til að læra af sérfræðingi.

fyrir nokkrum tímum var arsenal að vinna liverpool, og ég ætla nú ekki að fara mikið inná það nema að það að Þröstur fannar skyldlingi minn var í heiðurstúku í þessum leik.

Svo er ætlunin með þessari endurkomu minni á þessa síðu að fara að sýna ykkur myndböndin sem ég er búinn að vera að gera úr myndum sem pabbi og harpa hafa tekið.

Ég hef ákveðið að kveðja með orðum skáldsins.."Verið hress..ekkert stress..bless


Posted at 9:42 pm by Bikko
1 hafa grenjað  




Next Page